Hér staðfestið þið hvort ykkar barn ætli á Goðamótið eður ei.
Mikilvægt er að réttar upplýsingar komi fram svo hægt sé að halda öllu skipulagi.
Sem dæmi um staðfestingu er:
Elín Björg ætlar með og fer með rútunni báðar leiðir.
Elín Björg ætlar með en fer ekki með rútunni.
Elín Björg ætlar með en fer með rútunni aðra leiðina.
Elín Björg fer ekki á mótið.
Heildarkostnaður við ferðina er 19.500, aðrar upplýsingar voru sendar til ykkar í pósti.
Foreldrastjórn
Bloggar | 17.2.2012 | 19:39 (breytt kl. 20:15) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
kæru foreldar
Viljum benda ykkur á að ykkur er velkomið að koma með í rútuna ef þið séuð að spá í að koma með stelpunum ykkar.
Fullt verð er fyrir auka forelda sem ekki eru farastjórar
kv
Kristján-ar
Bloggar | 14.2.2012 | 19:22 (breytt kl. 20:23) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um að gera að nýta sér þennan góða styrk frá Hafnarfjarðarbæ.
Bloggar | 14.2.2012 | 10:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
kæru foreldrar
Ekki var mætingin á fundinn í kvöld upp á marga fiska :)
Það hefur verið ákveðið að fara á goðamótið á Akureyri dagana 2-4 mars næstkomandi og núna hefst skráning á mótið hérna í kommentakerfinu.
Reynum að fá sem flestar stelpur á mótið. Mótið sjálft kostar c.a. 8.500. Erum að kanna rútur og kostnaður þar virðist vera samtals kr.5000 á mann báðar leiðir. Svo smá aukakostnaður við mat og eitthvað fleira sem er í boði á mótinu. Rútan verður til staðar fyrir okkur fyrir norðan allan tímann. Auka upplýsingar um mótið er að finna á heimasíðu mótsins www.godamot.blog.is
Það eru komir 6 farastjórar og eru það Kolbrún( Dagbjört Ylfa), Fanney(Dagbjört Bjarna), Guðbjörg (Elín), Helma (Dagbjört Freyja), Hlynur(Rakel) og Sveinn (silja Karen). 2 með hverju liði sem er frábært. ef við náum í 3 lið
Við erum líka búnir að setja inn hérna til hægri upplýsingar um mót sumarsins hjá stelpunum, enn vantar dagsetningu á eitt mót, og enn óákveðið hvað mót verður farið á í ágúst
kv
Kristján-ar
p.s ef þið eruð ekki að fá e-mail frá okkur endilega sendið á okkur línu og tilkynnið nafnið á ykkur og barninu svo við getum breytt því hjá okkur :)
Bloggar | 9.2.2012 | 21:35 (breytt 10.2.2012 kl. 21:24) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Farin verður á skauta á laugardaginn 11 febrúar, mæting er í skautahöllina í laugardal kl 13:00, koma með góða skapið sem þið eruð svo þekktar fyrir :)
það er engin æfing þennan dag
muna að koma með 1000kr og munum við verða þarna í ca 90 mín
kv
Þjálfarar
Bloggar | 8.2.2012 | 14:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Kæru foreldrar
foreldrafundur verður haldinn á Ásvöllum fimmtudaginn 9 febrúar kl 18:00 vegna Goðamóts sem á að halda á Akureyri þann 2-4 mars
endilega skoðið blogg mótsins á www.godamot.blog.is
Æfingin sem á að vera laugardaginn 25 febrúar fellur niður vegna leikja sem eru á Ásvöllum. Æfingin þeirra færist til sunnudagsins 26 febrúar í Risann kl 11:00-12:00
kv
Þjálfarar
Bloggar | 7.2.2012 | 17:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Æfingin í dag gæti orðið inni, þannig að ég bið ykkur að koma með inni og útiföt á æfingu.
Ef það verður ekki búið að skafa völlinn förum við inn og gerum styrktaræfingar.
látið hinar stelpurnar vita af æfingunni og nýju bloggsíðunni okkar
kv
Þjálfarar
Bloggar | 24.1.2012 | 10:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggar | 23.1.2012 | 15:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)