Goðamótið - upplýsingar

Nú er komið að því, fyrsta mót ársins (-:.
Það er mæting á Ásvelli á morgun föstudag kl. 07:40 og lagt af stað kl. 08:00.

Það sem þarf að hafa meðferðis er:
Dýna, sæng/svefnpoki, koddi, lak, tannbursti, tannkrem, keppnisbúningur, TAKKASKÓR, LEGGHLÍFAR fótboltasokkar (helst allavega tvö pör), HLÝ FÖT (það er kalt í Boganum), sundföt, handklæði sundgleraugu (fyrir þær sem vilja), sundpoka og vatnsbrúsa.

Það er líka gaman að hafa meðferðis Haukatattoo og litlar teygjur ef eitthvert foreldri fær fiðring og vill flétta (-:.

Leyfilegt er að taka síma, rafmagnstæki og spil með en þau eru á eigin ábyrgð.

Við viljum biðja foreldra að nesta stelpurnar í rútuna. Endilega hafið í huga að hafa nestið hollt og gott eins t.d. ávexti og grænmeti, samloku eða eitthvað slík. Það má líka koma með Corny en sælgæti og gos er ekki í boði. Þær fá heita máltíð á leiðinni því við stoppum í Staðarskála og fáum hakk og spaghetti.

Þeir foreldrar sem eru á staðnum - ekki taka stelpurnar úr prógramminu því það er stíft prógramm hjá þeim alla helgina og þjálfarar vilja að þær verði með allan tímann. Stelpurnar borða allar með sínum hópi, það er nóg matur þannig að foreldrar þurfa ekki að fæða börnin aukalega.

Fararstjórar og þeirra símanúmer:
Guðbjörg 861-3614 (A-lið)
Fanney 695-9428 (A-lið)
Kolla 860-2244 (B-lið)
Sveinn 868-9092 (B-lið)
Helma 862-1441 (B-lið)

Við erum með allan hópinn saman en ef þið viljið ná í einhvern sérstaklega þá setti ég liðin fyrir aftan hvert foreldri. Verið alveg óhrædd við að hringja í okkur. Endilega látið okkur vita ef það er eitthvað sem við getum hjálpað með og líka ef það er líkleg heimþrá, lyf o.s.frv.

Við erum með dýrmætan farm og gerum okkar besta í því að hugsa vel um alla (-:.

Haukakveðja, fararstjórar


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband