Þegar komið er á Sauðárkrók ætlum við að hittast á tjaldsvæðinu kl. 20:00 og ganga saman í þann skóla sem við gistum (kemur í ljós þegar nær dregur). Stefnt er að því að vera á neðra tjaldsvæðinu svo lengi sem við náum því.
Það munu einhverjir fara á miðvikudeginum og taka frá pláss. Það er mikilvægt að setja í athugasemdir í hverju þið gistið þ.e. tjaldi, tjaldvagni, fellihýsi o.s.frv. upp á það að við getum áætlað pláss.
Við verðum með tvö lið og ætlum að skipta fararstjórninni á milli okkar. Díana(mamma Erlu Sólar) og Guðbjörg (mamma Elínar Bjargar) ætla að gista báðar næturnar og sjá um að koma þeim í morgunmat.
Við munum síðan skipta dögunum á milli okkar allra - á föstudagskvöldinu þegar við hittumst öll þá verður skipulagið komið á blað og því dreift.
Stelpurnar fá morgunmat, hádegismat og kvöldmat. Þess á milli eru stelpurnar á vegum foreldra og fararstjóra hverju sinni. Við viljum biðja ykkur um að gefa þeim ekki sælgæti, orkudrykki eða annað sambærilegt. Þær þurfa jákvæða orku því þetta verða langir dagar. Við munum vera með ávexti handa stelpunum á laugardagskvöldinu eftir að komið verður í skólann. Einnig munum við hafa eitthvað gott handa þeim til að taka með á kvöldvökuna.
Það sem þarf að hafa meðferðis er dýna, svefnpoki/sæng, koddi, lak, TAKKASKÓR, legghlífar, fótboltasokkar, náttföt, KEPPNISBÚNINGUR, sundföt, sundpoka, handklæði, tannbursta, tannkrem, hlý föt, vatnsbrúsa, Haukahettupeysur (þær sem eiga) og poncho (þær sem eiga).
Leyfilegt er að taka með sér síma, raftæki og spil en þau eru á eigin ábyrgð.
Einnig væri frábært að allar væru með Hauka-TATTOO. Hægt er að kaupa þau á Ásvöllum.
Athugasemdir
Við verðum í fellihýsi og komum á fimmtudaginn:)
Dagbjört Ylfa (IP-tala skráð) 18.6.2012 kl. 18:23
Við verðum í tjaldvagni og komum á fimmtudagskvöldið,
Rakel Harpa (IP-tala skráð) 18.6.2012 kl. 20:01
Við verðum í tjaldi og komum á föstudegi..
Dagbjört Bjarna (IP-tala skráð) 18.6.2012 kl. 20:57
Við erum í fellihýsi og komum á föstudaginn
Indiana (IP-tala skráð) 18.6.2012 kl. 21:01
Við verðum í fellihýsi og komum á föstudaginn
Anna María (IP-tala skráð) 18.6.2012 kl. 21:35
Verðum í tjaldi og komum á fimmtudagskvöldi :)
Nadía ósk (IP-tala skráð) 20.6.2012 kl. 12:01
Pabbi verður í kúlutjaldi og kemur á föstudagskvöldið.
Sigrún Björg (IP-tala skráð) 20.6.2012 kl. 17:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.