Mætingin á æfingu í dag var flott og stelpurnar voru virkilega duglegar. Þetta eru svosem ekki nýjar fréttir þar sem mætingin hjá flokknum hefur verið til fyrirmyndar sem og dugnaðurinn, en mér fannst við hæfi að taka það fram á blogginu í dag :)
Höldum áfram að bæta okkur með hverri æfingu. Eins og við sögðum á æfingu í dag, þá vann íslenska kvennalandsliðið Svíþjóð í dag í leik um bronsið á Algarve-mótinu. Við eigum margar flottar fyrirmyndir í kvennaboltanum hér á Íslandi :)
Að lokum þá er gott að fara að mynda foreldrafélag í flokknum. Þeir sem hafa áhuga mega endilega senda línu á mig á netfangið aro24@hi.is
kv. Þjálfarar
Athugasemdir
Birgitta Kristín kemst ekki á æfingu í dag þar sem það eru auka æfingar í ballett út af lokasýningu. kv. Linda
Linda (IP-tala skráð) 16.3.2014 kl. 09:57
Sóley Lind kemst ekki á æfinguna í dag.
Ósk (IP-tala skráð) 19.3.2014 kl. 14:30
Hæ hæ,
Mig langar að koma með eina tillögu.
Hún er sú að búa til facebookhóp fyrir foreldra og þjálfara í þessum flokki. Það virðist vera mun auðveldara að halda utan um samskiptin þar (Jói, þjálfarinn í 6.-7. fl í handboltanum hjá stráknum mínum er með þetta svoleiðis) og maður er bæði oftar tengdur þar og einnig sér maður nöfn og andlit á öðrum foreldrum. Einnig sér þjálfarinn hverjir hafa séð tilkynningar sem hann setur þar inn og skilaboð skila sér hraðar.
Kannski hefur þessi hugmynd komið upp áður en alla vega, mér finnst þetta
fyrirkomulag sem er í handboltanum mjög gott. Það er bæði meiri hætta á að við foreldrarnir gleymum að kíkja hingað inn og svo þarf líka að opna athugasemdirnar sérstaklega og hlutirnir eru fljótir að týnast.
Petrína (IP-tala skráð) 20.3.2014 kl. 11:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.