Að undanförnu hefur ekki verið sú glæsilega mæting á æfingar sem við höfðum í upphafi, en nú virðist það allt vera að lagast og stelpurnar farnar að mæta mun reglulegra. Það er jákvætt !
Á tímabili var stundvísin nánast að fara með flokkinn. Fyrir stuttu voru 6 stelpur mættar þegar æfingin hófst og komu 15 of seint. Við þjálfarar ákváðum að ræða þetta vel við stelpurnar í von um að það myndi laga eitthvað áður en við myndum snúa okkur til foreldra. Aftur á móti hafa þær tekið þessu vel og jafnvel enn betur en við áttum von á því á miðvikudaginn mætti ENGIN of seint auk þess sem margar voru mættar mjög tímanlega og byrjaðar að leika sér á vellinum löngu fyrir æfingu. Það er jákvætt !
Við hvetjum auðvitað foreldra til að ræða við stelpurnar og standa við bakið á þeim enda mikill bolti í þeim öllum og virkilega skemmtilegur hópur. Ef það er eitthvað sem stelpurnar eru ekki sáttar með þá viljum við auðvitað fá að heyra það sem allra fyrst enda stöndum við fyrir það að hafa alla sátta :)
Þemað á sunnudaginn er buff-a-þema (allar að mæta með buff)
kv. Þjálfarar
Bloggar | 22.2.2013 | 13:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Við þjálfarar þökkum fyrir skemmtilega og öðruvísi viku sem lauk núna um helgina og vonum að þið hafið haft gaman af líka :)
En núna höldum við ótrauð áfram og markmið æfinganna verður auðvitað að læra meira og bæta sig með hverjum deginum ! Ræddum við stelpurnar eftir æfingu í gær að það væri best að vera mættar 5mín fyrir æfingu og geta leikið sér þá aðeins. Við þjálfarar erum yfirleitt mættir tímanlega til að stilla upp æfingum og annað og því minnsta málið að fá bolta til að leika sér með :)
Við sjáumst hress og kát á næstu æfingu, öskudaginn !
kv. Þjálfarar
Bloggar | 12.2.2013 | 10:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Við þjálfarar þökkum fyrir skemmtilega stund í pitsavídeóhittingnum okkar í gær :)
Á sunnudaginn er síðasta vinkonuæfingin í vinkonuvikunni og því hvetjum við auðvitað allar að muna eftir vinkonu sinni. Æfingin hefst stundvíslega kl 11 í Risanum.
Þemað á sunnudaginn er : Fyndnar/Skemmtilegar/Öðruvísi húfu þema ;)
Sjáumst hress og kát,
kv. Þjálfarar
Bloggar | 7.2.2013 | 13:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Á morgun, miðvikudaginn 6.febrúar, verður pitsavídeóhittingur á Ásvöllum.
Mæting kl 18.00 og verðum til rúmlega 20.00
Allar í flokknum velkomnar og vinkona líka.
Taka með sér 600kr.
kv. Þjálfarar
Bloggar | 5.2.2013 | 19:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
# Vinkonuvikan hefst á morgun, mánudaginn 4.febrúar, en nánir upplýsingar í bloggfærslunni hér fyrir neðan. Skemmtileg og fjölmenn vika sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.
# Íslensk veðurátta er alveg stórkostleg. Minnum á að stelpurnar séu vel klæddar fyrir æfingar enda allra veðra von. Við frestum eða sleppum aldrei æfingu og gerum alltaf það besta úr hlutunum en ef veður er extra vont, þá reynum við að komast eitthvað inn.
# Mótamál í sumar eru orðin ljós og lítur svona út fyrir 6.fl kvenna:
Mót | Staðsetning | Dagsetning | Tegund | Verð |
Íslandsmótið | ? | ? | Dagsmót | - |
VÍSmót Þróttar | Laugardalur | 25. til 26.maí | Dagsmót | 2000kr |
Landsbankamótið | Sauðárkrókur | 29. til 30.júní | Helgarmót | 8000kr |
Símamótið | Kópavogur | 18. til 21.júlí | Helgarmót | 7000kr |
Arionbanka mót Víkings | Fossvogur | 17. til 18.ágúst | Dagsmót | 2000kr |
Bloggar | 3.2.2013 | 21:19 (breytt kl. 21:19) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þann 4.febrúar næstkomandi munum við þjálfarar standa fyrir vinkonuviku í fótboltanum hjá Haukum. Vikan verður þannig að hver og einn iðkandi tekur vinkonu sína með sér á æfingar í heila viku. Vinkonan má ekki vera að æfa fótbolta hjá Haukum í augnablikinu :)
Vikan yrði nánast óbreytt frá því sem hefur verið:
Mánudagsæfing kl 16:00
Miðvikudagsæfing kl 15:00
Sunnudagsæfing kl 11:00 (í Risanum)
+ Félagslegt sem við myndum kynna þegar nær dregur.
Núna fá stelpurnar tækifæri til að draga vinkonu sína með á æfingu og kenna þeim alla flottustu taktanna og sýna þeim hvernig við skorum mörkin. Vinkonurnar munu parast saman í æfingum svo það er engin ástæða til að vera feimin.
Nú getið þið farið að bjóða vinkonu ykkar og megið svo endilega skella því í athugasemdir hver vinkonan verður hjá hverri og einni :)
Þetta verður skemmtileg vika og við þjálfararnir erum virkilega spenntir !
Mót sumarsins eru farin að skýrast og við lofum því að upplýsingar um þau koma inná bloggsíðuna í næstu viku.
kv. Þjálfarar
Bloggar | 25.1.2013 | 09:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.flokkur kvenna hjá Haukum fær stóran + eftir daginn í dag í Risanum.
Við vorum að sjá góð tilþrif og hressar haukastelpur á vellinum í dag og greinilegt að æfingarnar og dugnaðurinn er að skila sér.
Næsta æfing er á morgun, mánudaginn, kl 16.00 !
Vonumst til að sjá sem flestar,
kv. Þjálfarar
Bloggar | 20.1.2013 | 22:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Við ætlum að stefna af því að byrja kl 12.00 svo það væri mjög gott ef allar stelpurnar væru mættar rétt fyrir hádegi.
Markmiðið er auðvitað að hafa gaman og reyna að láta allar spila eins mikið og við getum. Hlökkum til að sjá ykkur í Risanum á morgun.
kv. Þjálfarar
Bloggar | 19.1.2013 | 11:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Við munum spila æfingaleik við Fjölni þann 20.janúar (sunnudaginn) í Risanum kl 12.00.
ATH! kl. 12.00 því að þá getum við fengið allan risann.
May og Sigrún hafa boðað komu sína í leikinn, endilega að fá fleiri til að skrá sig í athugasemdum.
P.s. Endilega kíkið á bloggið fyrir neðan líka.
kv. Þjálfarar
Bloggar | 16.1.2013 | 10:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
Stelpurnar fá topp einkunn fyrir æfinguna í gær ! Algjörir snillingar :)
Við þjálfararnir sendum út póst á morgun á foreldra en ef einhverjir hafa ekki fengið hann, þá megið þið endilega senda mér línu á netfangið mitt (Andri) og ég sendi póstinn áfram. Reikna samt með að hafa haft öll netföngin en bara til vonar og vara.
Á dagskrá næstu daganna:
# Æfingaleikur - Við munum spila 20.janúar í Risanum gegn Fjölni kl 12.00
ATH ! kl 12.00 því þá erum við með allan Risan, skrá sig í kommentum hverjir komast :)
# Vinkonu-vika - Þá ætlum við að taka frá mánudegi til sunnudags heila viku þar sem allar stelpurnar taka eina vinkonu með sér á æfingar og hafa svolítið fjör líka. Þetta væru þrjár æfingar sem vinkonurnar kæmu með á og myndi enda uppí Risa á mikilli skemmtun. Munum einnig kynna það fljótlega en reiknum með að vinkonuvikan myndi hefjast strax í nýjum mánuði (febrúar)
# Mót sumarsins - Munum setja inn hugsanlega í næstu viku plan fyrir sumarið sem inniheldur meðal annars hvaða mót við munum fara á.
Minnum svo á næstu æfingu sem er á miðvikudaginn kl 15.00
kv. Þjálfarar
Bloggar | 15.1.2013 | 11:21 (breytt kl. 12:10) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)