Við minnum á æfinguna á sunnudaginn uppí Risa kl 11:00
Þemað á þessari fyrstu risaæfingu ársins er..
Haukamerkið !!
Hlökkum til að sjá sem flestar :)
kv. Þjálfarar
Bloggar | 12.1.2013 | 12:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Við verðum inni í dag,
íþróttasalnum á ásvöllum B-meginn
kv. Þjálfarar
Bloggar | 9.1.2013 | 14:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Gleðilegt nýtt ár kæru stúlkur !
Nýtt ár þýðir ný ævintýri og ný markmið :)
Fyrsta æfingin okkar saman á nýju ári er á mánudaginn (7.jan)
Minnum á æfingatímanna okkar:
Mánudagar kl.16.00 - 17.00
Miðvikudagar kl.15.00 - 16.00
Sunnudagar kl. 11.00 - 12.00 (Risinn)
Minnum svo foreldra á að vera duglega að kíkja inná bloggið því við ætlum að reyna að taka t.d. æfingaleik í janúar, höldum áfram með þemaæfingarnar á sunnudögum og margt fleira skemmtilegt :)
Sjáumst hress og kát á mánudaginn,
kv. Þjálfarar
Bloggar | 5.1.2013 | 22:25 (breytt kl. 22:25) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um leið og við þjálfararnir óskum ykkur öllum gleðilegra jóla viljum við einnig þakka fyrir árið sem er að líða og allar góðu stundirnar :)
Nýtt ár færir ný ævintýri og nýtt fjör !
6.fl kvenna byrjar svo aftur að æfa á fullu á sinni fyrstu æfingu á nýju ári, mánudaginn 7.janúar 2013 kl 16.00 !
Hafið það sem allra best,
jólakveðja frá
Andra og Steina
Bloggar | 29.12.2012 | 16:00 (breytt kl. 16:00) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jæja þá er síðasta æfing ársins að renna upp hjá okkur !
Á miðvikudaginn ætlum við að lyfta okkur upp og hafa inni jólaæfingu með stórurólunni og öllu tilheyrandi. Það væri frábært ef allar gætu mætt með jólahúfu.
Æfingin byrjar kl.14.50 og stendur til 16.10 semsagt klukkutími og tuttugu mínútur ;)
Við vonumst til að sjá ykkur allar
kv. Þjálfarar
ps. Þetta er sameiginleg æfing hjá 6. og 7. flokki
Bloggar | 17.12.2012 | 21:56 (breytt 19.12.2012 kl. 12:37) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Gott fólk, á sunnudaginn er síðasta æfingin í Risanum á þessu ári, eða síðasta Risaæfing ársins ;)
Síðasta æfing fyrir jólafrí er miðvikudaginn 19.des
Sunnudagurinn 16.des
Risinn Hafnafirði
Æfing kl 11:00
Þjálfarar Andri og Steini
Leynigesturinn
Þema: Gulur
Sjáumst hress og kát á sunnudaginn og njótum samverunar rétt fyrir jólafrí :)
kv. Þjálfarar
Bloggar | 14.12.2012 | 22:21 (breytt kl. 22:21) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Okkur þykir leitt að leynigesturinn hafi ekki komist í morgun en hann/hún lofaði að koma næsta sunnudag !
Æfing á mrg, mánudag, kl 16:00 og minnum á stundvísi :)
Þær sem eru búnar með heimavinnuna mega enn skila henni, þar sem við höfum lengt skilafrestinn.
Alveg ótrúlega hress og duglegur hópur og þær fá 10 í einkunn fyrir æfinguna í morgun :)
kv. Þjálfarar
Bloggar | 9.12.2012 | 18:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Æfingin á sunnudaginn verður ROSA.. LEG ! ROSALEG !
Þemað er tígó :)
og til að gera þetta enþá meira spennandi..
þá kemur gestur á æfinguna okkar !
Jólafrí verður frá 21.des til 6.jan
(síðasta æfing miðvikudaginn 19.des og fyrsta sunnudagurinn 6.jan)
Endilega fylgist vel með blogginu næstu daga.
Kv. Þjálfarar
Bloggar | 7.12.2012 | 21:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þeir sem sjá þetta blogg tímanlega geta því klætt sig fyrir inniæfingu, en við sjáum til þess að það muni engin mæta á tómt gervigras :)
kv. Þjálfarar
Bloggar | 5.12.2012 | 14:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Á mánudaginn þegar æfing hófst og klukkan var orðin 16.00 voru 6 stelpur mættar á æfingu.. Þessar 6 voru reyndar mættar mjög tímanlega..
Þegar æfingunni var síðan lokið töldum við 20 stelpur á æfingu..
Það þýðir að 14 stelpur voru að mæta seint og var það allt frá 2-3 mínútum og uppí 25 mínútur yfir.
Við ræddum við stelpurnar á mánudaginn og ætlum að minna á þetta aftur á morgun. Það verður rosaleg truflun á æfingunni þegar það er seinkunn og erfitt þegar maður nær ekki að fá fasta tölu á hópnum yfir æfingunna.
Endilega minnið stelpurnar á stundvísi !
Æfing á morgun kl 15.00 og sunnudagsæfingin auglýst síðar.
kv. Andri og Steini
Bloggar | 4.12.2012 | 21:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)