Okkur þjálfurum langar til að þakka ykkur fyrir helgina !
Virkilega skemmtilegt mót og samveran var æði :)
Hver og ein í þessum flokki stóð sig eins og hetja og árangurinn var flottur ! ALLIR eru að taka góðum framförum og við höldum bara áfram að bæta okkur.
Æfing í dag kl 15:00.
Minnum líka á að við æfum mán - þri - mið og fim og alla daga byrjum við kl 15.
Síðan er bara Símamótið í Júlí :)
bestu kveðjur,
Andri og Kristján
Bloggar | 25.6.2012 | 12:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
http://ja.is/kort/#q=index_id%3A956552&x=355005&y=397702&z=9&from=%C3%81svellir&to=Versalir
Afritið þessa vefslóð og þá fáið þið beina og mjög skýra leið frá Ásvöllum og á Versalavöll :)
kv. Þjálfarar
Bloggar | 18.6.2012 | 23:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þegar komið er á Sauðárkrók ætlum við að hittast á tjaldsvæðinu kl. 20:00 og ganga saman í þann skóla sem við gistum (kemur í ljós þegar nær dregur). Stefnt er að því að vera á neðra tjaldsvæðinu svo lengi sem við náum því.
Það munu einhverjir fara á miðvikudeginum og taka frá pláss. Það er mikilvægt að setja í athugasemdir í hverju þið gistið þ.e. tjaldi, tjaldvagni, fellihýsi o.s.frv. upp á það að við getum áætlað pláss.
Við verðum með tvö lið og ætlum að skipta fararstjórninni á milli okkar. Díana(mamma Erlu Sólar) og Guðbjörg (mamma Elínar Bjargar) ætla að gista báðar næturnar og sjá um að koma þeim í morgunmat.
Við munum síðan skipta dögunum á milli okkar allra - á föstudagskvöldinu þegar við hittumst öll þá verður skipulagið komið á blað og því dreift.
Stelpurnar fá morgunmat, hádegismat og kvöldmat. Þess á milli eru stelpurnar á vegum foreldra og fararstjóra hverju sinni. Við viljum biðja ykkur um að gefa þeim ekki sælgæti, orkudrykki eða annað sambærilegt. Þær þurfa jákvæða orku því þetta verða langir dagar. Við munum vera með ávexti handa stelpunum á laugardagskvöldinu eftir að komið verður í skólann. Einnig munum við hafa eitthvað gott handa þeim til að taka með á kvöldvökuna.
Það sem þarf að hafa meðferðis er dýna, svefnpoki/sæng, koddi, lak, TAKKASKÓR, legghlífar, fótboltasokkar, náttföt, KEPPNISBÚNINGUR, sundföt, sundpoka, handklæði, tannbursta, tannkrem, hlý föt, vatnsbrúsa, Haukahettupeysur (þær sem eiga) og poncho (þær sem eiga).
Leyfilegt er að taka með sér síma, raftæki og spil en þau eru á eigin ábyrgð.
Einnig væri frábært að allar væru með Hauka-TATTOO. Hægt er að kaupa þau á Ásvöllum.
Bloggar | 18.6.2012 | 17:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Enn eiga nokkrar eftir að greiða fyrir Landsbankamótið. Vinsamlegast gangið frá því sem fyrst.
10.000 kr
140-05-010255
Kt: 091273-3069
Kv foreldraráð
Bloggar | 17.6.2012 | 09:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Við Haukarar ætlum að mæta í skrúðgönguna og labba saman undir Haukafána, það væri mjög gaman ef þið gætuð komið í Haukagallanum og tekið þátt í skrúðgöngunni.
Mæting kl. 13.30 þar sem skrúðgangan byrjar (man ekki alveg en er auglýst hér í Hafnarfirði hvar)
SJáumst hress og kát.
Skoðið blogg fyrir neðan mikið um færslur sem þið þurfið að skoða vel.
Bloggar | 14.6.2012 | 18:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
A - lið: Elín, Dagbjört Ylfa, Dagbjört Freyja, Dagbjört Bjarnad, Anna, Aníta og Ágústa
B - lið: Guðríður, Erla Sól, Birgitta, Margrét, Sólborg, Auður, Rakel og Unnur
A-lið á að mæta kl.9.30
B-lið kl.10.00
Endilega láta vita í comment hvort þið komist ekki alveg örugglega.
Kveðja Þjálfarar
Bloggar | 14.6.2012 | 18:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Svona verða liðin á mótinu, miðað við skráninguna á mótið.
Haukar 1: Elín, Dagbjört Freyja, Dagbjört Ylfa, Dagbjört Bjarnad, Aníta, Anna, Ágústa, Birgitta
Haukar 2:Sigrún, Sólborg, Erla Sól, Margrét, Indíana, Rakel, Bryndís, Nadía og Guðríður
Bloggar | 14.6.2012 | 18:03 (breytt kl. 18:03) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stelpurnar og mömmurnar stóðu sig frábærlega í sjoppunni í gær hér á Ásvöllum. Það var nóg bakkelsi, svalar og ávextir. Það sem var afgangs var ákveðið að frysta og taka með á Sauðárkrók (-:.
Útkoman úr sjoppunni var 28.157 og verður það notað til að gera eitthvað skemmtilegt (-:. Peningurinn verður lagður inn á reikning sem Fanney, gjaldkerinn okkar, sér um.
Bloggar | 13.6.2012 | 10:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ætlum að afhenda hettupeysurnar á Ásvöllum, miðvikudag milli kl 17 og 18.
Kv foreldraráð
Bloggar | 12.6.2012 | 21:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Á morgun þriðjudag er Hnátumót c- og d-liða hér á Ásvöllum.
Við erum með c-lið í keppni og í því liði eru:
Birgitta, Indíana, Allý, Erla Sól, Rakel Harpa, Margrét Lovísa, Sólborg, Bryndís Eva og Nadía.
Það er mæting kl. 12:30 fyrir allar þ.e. þær sem eru að keppa og líka þær sem eru að fara að selja í sjoppunni.
Fanney, mamma Dagbjartar Bjarna mun taka á móti stelpunum og góðgætinu og koma öllu af stað.
Bloggar | 11.6.2012 | 18:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)