Allra síðasti dagur til að skrá sig á Landsbankamótið er á morgun þriðjudag.
Eftir það verður ekki hægt að bæta við skráningum.
Gjaldið fyrir mótið er 10.000 og er mikilvægt að millifæra sem allra fyrst eða í síðasta lagi á miðvikudaginn 13.júní - munið að setja nafn barns sem skýringu.
Millifærslureikningur:
0140-05-010255
kt. 091273-3069
kr. 10.000
Senda kvittun á fanney@menntun.is
Þær sem eru búnar að skrá sig eru:
Elín Björg, Dagbjört Bjarna, Sólborg, Indíana, Dagbjört Ylfa, Dagbjört Freyja, Rakel Harpa, Bryndís Eva, Margrét Lovísa, Ágústa, Erla Sól, Sigrún Björg og Birgitta.
Bloggar | 11.6.2012 | 18:40 (breytt kl. 20:59) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudaginn 12. júní höldum við hnátumót fyrir 6.fl.kvk c- og d-lið.
Við ætlum að vera með sjoppu og biðlum við til ykkar um að baka kökur/brauð til að selja. Hver stelpa kemur með eitthvað eitt síðan þurfum við að fá stelpur til að vinna í sjoppunni. Þær sem vilja gera það þurfa að setja það í athugasemdir.
Mótið er kl. 13:00-18:00 á þriðjudeginum.
Við gerum ráð fyrir að ALLAR komi með eitthvað.
ÁGÓÐINN VERÐUR NOTAÐUR TIL AÐ GERA EITTHVAÐ SKEMMTILEGT MEÐ ÖLLUM FLOKKNUM (-:.
Bloggar | 8.6.2012 | 15:56 (breytt 9.6.2012 kl. 20:39) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
Fundur vegna Landsbankamóts verður haldinn mánudaginn 11.júní kl. 18:00 hér á Ásvöllum.
Á þeim fundi er mjög mikilvægt að þeir sem ætla að fara á Krókinn mæti og staðfesti þátttöku sinnar stelpu.
Með hverju liði þarf 2 fararstjóra, viljum við hvetja ykkur til að hugsa það mál aðeins, nú þegar hafa 2 foreldrar boðið sig fram.
Þátttökugjald er kr. 10.000 sem verður að greiða í síðasta lagi á miðvikudaginn 13.júní.
Bloggar | 8.6.2012 | 15:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Landsbankamótið á Sauðárkróki er haldið 23-24 júni og allar upplýsingar eru á finna um mótið á:
http://www.tindastoll.is/index.php?pid=1437
vinsamlegast skráið stelpuna hérna að neðan, skráning mun standa yfir til mánudagsins 18 júní, eftir það er ekki hægt að skrá sig á mótið.
Þær sem eru þegar búnar að skrá sig eru:
Elín, Rakel, Dagbjört Ylfa, Dagbjört Freyja, Indiana, Dagbjört Bjarna, Sigrún og Birgitta Líf.
Auglýsum sumartímanna fljótlega.
Endilega kíkið á bloggið fyrir neðan líka
kv. Andri og Kristján
Bloggar | 5.6.2012 | 23:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sumartímar flokksins hefjast 11.júní og munum við kynna þá á blogginu núna í næstu viku.
Það styttist í aðalfjör sumarsins.
Fyrst ber að nefna Hnátumót 6.fl kvenna. Það er íslandsmótið okkar og erum við með skráð 3 lið. A og B liðin spila 19.júní á Versalavöllum í Kópavogi en C liðið spilar 12.júní á Ásvöllum. Þetta kynnum við einnig nánar í komandi viku en foreldrar mega endilega láta vita ef þið komist.
Næst er svo Króksmótið sem er 23-24.júní. Þar munu Haukar verða með þrjá flokka (5, 6 og 7.fl kvenna) og verður þvílík stemming. Hellingur af leikjum og skemmtileg dagskrá þar. Skráning á það mót í athugasemdum.
Minnum svo á að vera duglegar að setja á sig sólarvörn þegar veðrið er svona gott og vera mættar tímanlega á æfingu. Sjáumst hressar ;)
kv. Andri og Kristján
Bloggar | 3.6.2012 | 09:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Haukar 2: Bryndís, Indíana, Rakel, Sigrún, Guðríður Ylfa, Sólborg, Erla, Auður, Margrét og Nadía
Haukar 1: Dagbjört Freyja, Anna, Clara, Dagbjört Ylfa, Elín, Ágústa, Aníta, Unnur og Birgtitta
Bloggar | 26.5.2012 | 20:40 (breytt kl. 20:48) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Það er búið að senda út póst til foreldra með leikjaniðurröðun fyrir sunnudaginn. Liðin fyrir mótið koma annað hvort inn í kvöld eða á morgun.
Hins vegar, þá eiga bæði lið (allar stelpurnar)
að mæta fyrir framan þróttaraheimilið í Laugardalnum
kl 8:00 á sunnudagsmorgun :)
Síðustu leikir eru svo um 11 leytið og þannig ætti mótið að vera búið fyrir hádegi.
Fylgist með hér á síðunni þegar liðin koma.
kv. Kristján og Andri
Bloggar | 25.5.2012 | 20:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sælar stelpur.
Glæsileg æfing hjá ykkur í dag, mikill dugnaður og mikið fjör.
Minnum á vísmótið á sunnudaginn. Skráningagjald er 2500.
Endilega skrá sig hérna í athugasemdum.
Ætlum svo að gulltryggja það að allir geri heimavinnuna sína fyrir föstudaginn:
#1 - Allir að æfa sig í að reima skó,
#2 - Senda bolta í vegg - 50x með hægri og 50x með vinstri.
Boðskapur dagsins: Æfingin skapar meistarann :)
kv. Kristján og Andri
Bloggar | 23.5.2012 | 08:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Á fimmtudaginn verðum við með sölu á hettupeysunum vinsælu. Rauðar peysur með Haukamerkinu framan á. Hægt er að koma og máta og panta á fimmtudaginn kl. 17:00-18:00 hér á Ásvöllum.
Barnapeysurnar kosta 3.500 og fullorðinspeysurnar 4.000.
Það verður að borga við pöntun.
Foreldraráð
Bloggar | 22.5.2012 | 08:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hið stórskemmtilega VÍS mót verður í Laugardalnum næstkomandi sunndag. nánari dagskrá verður auglýst nánar á morgun. Endilega að skrá sig sem fyrst svo við getum séð hverjar ætla að mæta.
Stelpurnar fá upplýsingar með sér heim af æfingu á morgun. Mótsgjaldið er 2.500 á hverja stelpu.
Kveðja Kristján og Andri
Bloggar | 21.5.2012 | 15:13 (breytt 22.5.2012 kl. 08:31) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)