Hver og einn verður að mæta í einni flík sem er í sínum uppáhalds lit :)
Við þjálfaranir erum búnir að finna okkar,
hlökkum til að sjá ykkur á sunnudaginn.
Kv. Steini og Andri
Bloggar | 29.11.2012 | 21:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mótið gekk virkilega vel fyrir sig og gaman að fá að spila smá.
Stelpurnar stóðu sig vel og voru til sóma bæði innan sem utan vallar !
Við þjálfararnir vildum innilega þakka ykkur stelpur fyrir daginn og foreldrum líka.
Mótastjórn hrósaði okkur fyrir mætinguna á þetta mót sem ég vill meina að þið foreldrarnir eigið frá A til Ö ;)
Einnig kærar þakkir fyrir stuðninginn á hliðarlínunni, stelpurnar kunna að meta svona.
Næsta æfing er á morgun(mánudag) kl 16:00,
hlökkum til að sjá sem flestar !
kv. Andri og Steini
Bloggar | 25.11.2012 | 18:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Minnum á að mæting er kl 11:45 í Kórinn í Kópavogi.
1000 kr mótsgjald á hvern leikmann.
Liðin eru í færslunni fyrir neðan :)
Miðað við nýjasta póstinn sem ég fékk lítur leikjafyrirkomulag svona út en það hafa víst orðið einhver forföll hjá þeim. Við hinsvegar fögnum öllum þeim leikjum sem við fáum :)
Haukar 1
12:15 - V1 - HK
12:45 - V2 - Fylkir
13:15 - V2 - Selfoss
13:45 - V2 - Fylkir
14:15 - V2 - Selfoss
14:30 - V1 - HK
Haukar 2
12:15 - V3 - Selfoss
13:15 - V3 - Leiknir
14:15 - V3 - Leiknir
14:30 - V3 - Selfoss
Haukar 3
12:30 - V1 - HK
13:00 - V2 - Fylkir
13:30 - V1 - HK
14:00 - V2 - Fylkir
Bloggar | 24.11.2012 | 22:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kæru stelpur og foreldrar !
Takk fyrir samveruna í sundlaugarpartýinu. Á sunnudaginn er æfingamót hjá flokknum þar sem aðalmarkmið okkar er að hafa gaman :)
Við vonumst auðvitað eftir því að sem flestir foreldrar mæti til að hvetja liðið, hópinn og heildina ;)
ÖLL þrjú liðin eiga að vera mætt kl 11:45 í Kórinn í Kópavogi.
Síðustu leikir verða búnir kringum kl 14:45.
Haukar 1 : Elín(m), Dagbjört, Erla, Sólborg, Rakel, Berghildur, Guðrún, Kristín
Haukar 2 : Stella(m), Birgitta L, Birgitta K, Elín K, Viktoría, Bryndís, Margrét B, Berglind,
Haukar 3 : Indíana(m), Sara, Ragnheiður, Sigrún, Rannveig, Bjarney, Inga, Mikaela, Auður
Við reynum að setja inn leikjaplan á laugardagskvöldið, en annars munum við afhenda einhver eintök af leikjum liðanna í Kórnum.
Endilega látið vita ef við erum að gleyma einhverri sem hefur ætlað að mæta.
Sjáumst hress og ÁFRAM HAUKAR !!
kv. Þjálfarar
P.s. Muna eftir 1000kr mótsgjaldi á hvern keppanda
Bloggar | 23.11.2012 | 22:41 (breytt kl. 22:45) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er allt að gerast hjá 6.fl kvenna þessa daganna !!
Okkur bauðst að halda sundlaugarpartý núna á föstudaginn (23.nóv) og auðvitað ætlum við að hafa virkilega gaman og þjappa okkur saman fyrir mótið á sunnudaginn :)
Fjörið verður í Suðurbæjarlaug og er mæting kl 19:20 til ca 21:00.
Verð á hverja stúlku er 700kr og er innifalið pitsa, ís og svali :)
Það væri gott að sjá hverjar eru til í þetta og ætla að koma,
einnig minnum við á æfingarmótið á sunnudaginn og skráninguna í það í blogginu fyrir neðan ;)
kv. Þjálfarar
Bloggar | 21.11.2012 | 22:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
Okkur þjálfurunum fannst einn æfingaleikur ekki nóg þannig að við ætlum að athuga hvernig þáttakan verður á æfingamót sem HK heldur.
Mótið er sunnudaginn 25.nóv (í staðinn fyrir æfingu) og er haldið í Kórnum í Kópavogi. Leiktíminn verður 12 mínútur og eru 4 leikir á hvert lið !
Reiknað er með að mótið byrji um hádegi og verði búið um kl 15 en við setjum allar nánari upplýsingar með tíma inn þegar það kemur.
Við skráðum 3 lið í mótið,
mótsgjald á hvern iðkanda er 1000 kr og eftir mót fá keppendur Frissa Fríska og verðlaunapening.
ALLIR að skrá sig í athugasemdir sem ætla að mæta :)
Þurfum helst að vera komnir með 21 stelpu sem ætlar að mæta fyrir kl 18.00 á föstudaginn.
bestu kveðjur,
Þjálfarar
Bloggar | 20.11.2012 | 15:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
Góðan daginn kæru stelpur og foreldrar !
Veturinn er nánast genginn í garð og því alltaf gott að klæða sig vel.
Sumar stelpurnar í Risanum í gær voru það vel klæddar að þær urðu meira að segja að geyma sumar flíkurnar til að stikna ekki ;)
Munum H-T-V (húfa, trefill, vettlingar)
Það er búið að vera vel mætt á allar æfingar og mikið fjör. Það er einnig búið að vera miklar framfarir hjá hópnum og við þjálfararnir erum virkilega ánægðir með gang mála !
Á næstu dögum stefnum við að því að hafa smá vídeó-afslöppun (félagslegt) og svo í lok Nóvember/byrjun desember ætlum við að reyna að taka æfingaleik :)
Hlökkum til að sjá ykkur á æfingu á eftir !
kv. Þjálfarar
Bloggar | 19.11.2012 | 10:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Minnum alla á að sækja vörurnar á morgun kl:18 á Ásvöllum.
Kv Foreldraráð
Bloggar | 11.11.2012 | 21:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sælar stúlkur,
þemað á morgun er ..
mislitir sokkar !
Hlökkum til að sjá ykkur,
kv. Þjálfarar
Bloggar | 10.11.2012 | 09:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nú er fjáröflun að ljúka og minnum við alla á að skila blöðunum á morgun klukka 17 í andyrinu á Ásvöllum.Muna að koma með pöntunarblöðin og peningana.Ef einhverjir ætla að millifæra þá er þetta sameiginlegi reikningurinn og þá þurfið þið að koma með kvittunina með ykkur.Muna að skrifa nafnið á stelpunni í tilvísun.
140 05 070879
KT:141080-3699
Það verður bara pantað það sem skilast á morgun ´því við þurfum að leggja inn allar pantanir á fimmtudaginn því við afhendum á mánudaginn..
Munið að skrifa númerið á reikningunum hjá stelpunum á blöðin
Kv Foreldraráð
Bloggar | 6.11.2012 | 21:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)