Vetrarharkan er hafin !

Núna þegar það sjást bláar tölur á veðurkortum landsmanna þarf að huga betur að yfirhöfnum barna sinna.
Núna á æfingunni á miðvikudaginn voru margar mjög illa klæddar og kvörtuðu sárann yfir kulda, sem því miður, þjálfarinn gat lítið gert við..

Það fer að kólna nokkuð næstu daga og hvítir skaflar hafa sést hér og þar um landið, en þegar það blæs líka, þá verður kuldinn enn sárari. Við þjálfarar höfum verið duglegir að benda þeim á það að taka frekar með sér fleiri flíkur en færri, enda mun betra að geta lagt til hliðar t.d. trefil heldur en að vanta hann :)

Sunnudagsæfingarnar okkar eru í Risanum eins og marg oft hefur komið fram, en þar er alveg grínlaust, 2x kaldara inni heldur en úti !!

Það hefur verið virkilega vel sóttar æfingar undanfarið og virkilega flottur hópur í 6.fl kvenna hjá Haukum ! Við biðjum þess vegna alla um að mæta MJÖG vel klædda á æfingar frá og með NÚNA :)

Þema sunnudagsins er hin heilaga þrenning sem Andri talaði um á æfingu á miðvikudaginn, og vonandi að einhverjar af stelpunum muni þá ræðu. En fyrir foreldra er hin heilaga þrenning: T - V - H (trefill, vettlingar, húfa)

Bestu kveðjur,
Þjálfarar


Foreldrafundur

Kæru foreldrar
Fimmtudaginn 1.nóv. kl. 17:00 verður foreldrafundur á Ásvöllum.
Fundarefni er þjálfun vetrarins og ýmis önnur mál.
Mikilvægt að allir foreldrar mæti.

Fjáröflun

Í dag fengu stelpurnar með sér heim 2 blöð í sambandi við fjáröflun.Við komum með blöðin aftur á miðvikudaginn fyrir þær sem ekki voru á æfingunni í dag.Endilega látið vita  ef einhver fékk ekki tölvupóst þá erum við ekki með netfangið. Í tölvupóstinum sendum við líka mynd af hálsmeninu og lyklakippunni.

Mjög mikilvægt er að þær sem ætla að taka þá í fjáröflun eigi reikning eða stofni reikning.

Kveðja Foreldraráð


Ítrekun og þema sunnudagsins

ÆFINGAGJÖLD - ÍTREKUN
Kæru forráðamenn
Þeir sem ekki hafa greitt æfingagjöld barna sinna fyrir 1.nóv. fá ekki að keppa fyrir hönd félagsins.
Sjá leiðbeiningar á haukar.is.

Með bestu kveðju frá íþróttastjóra

Á sunnudaginn verður nýtt og skemmtilegt þema.
Fyrsti stafurinn er T og orðið rímar við hefill,
já þið giskuðuð á rétt, Trefill !!
Treflaþema á sunnudaginn, hlökkum til að sjá ykkur :)
A & K


Frítt fyrir 16 ára og yngri.Landsleikur Ísland - Úkraína, Laugardalsvelli kl.18.30

Það er frítt á mikilvægasta fótboltaleik á Íslandi þónokkurn tíma fyrir 16 ára og yngri. Stelpurnar þurfa ekki miða á völlinn,bara að mæta. En ég fékk nokkra auka fullorðins miða og þeir eru í afgreiðslunni undir knd. kvenna landsleikur. Fyrstir koma fyrstir fá. Endilega fylgið stelpunum ykkar á þennan frábæra leik.

ÍTREKUN - LESA VEL !

ÆFINGAGJÖLD – ÍTREKUN (fyrirsögn)
Kæru forráðamenn
Þeir sem ekki hafa greitt æfingagjöld barna sinna fyrir 1.nóv. fá ekki að keppa fyrir hönd félagsins.
Sjá leiðbeiningar á haukar.is.

Með bestu kveðju, íþróttastjóri

Sunnudagsæfingin

Sælar stelpur (og foreldrar)

Frábær æfing á miðvikudaginn, mikill dugnaður og mjög gott hljóð þegar um það var beðið ! Enda spiluðuð þið alveg helling í lokin á þeirri æfingu :)

Á sunnudaginn verður æfingin okkar í Risanum kl 11:00 eins og áður, en við ætlum hins vegar að hafa þema. Þemað á þessari æfingu er: bleikur.
Verður skemmtileg æfing, hellingur af leikjum og svo spil ;)

Minnum alla foreldra á að kíkja á bloggið fyrir neðan líka !
Mikilvægt að lesa það í gegn !

Haukakveðjur,
A & K


Skilaboð

Kæru forráðamenn
Nú þurfa þeir sem eiga eftir að ganga frá æfingagjaldi fyrir barnið sitt að gera það sem allra fyrst.
Nú er það svo að eftir því sem líður á þá lækkar niðurgreiðslustyrkurinn sem í boði er frá bænum og þá þurfið þið forráðamenn góðir að greiða hærri upphæð.
Best er að fara í gegnum hafnarfjordur.is – mínar síður og klára að ganga frá greiðslu þar, munið að haka við þar sem stendur „Nota íþrótta- og tómstundastyrk“.

Mikilvægt er að ganga frá æfingagjaldi síns barns fyrir 1. nóv. Eftir það gildir sú regla, sem tekin var í notkun nú á þessu tímabili, að þeir iðkendur sem ekki hafa verið skráðir og greidd æfingagjöld fyrir, hafa ekki heimild til að taka þátt í mótum/leikjum á vegum félagsins. Þetta er gert til að allir sitji við sama borð varðandi greiðslu æfingagjalda.
Einnig minni ég á að hægt er að skipta æfingagjaldi í allt að 11 mánuði hvort sem er með greiðsluseðlum eða á kreditkort.

Með von um jákvæð viðbrögð,
Guðbjörg Norðfjörð
Íþróttastjóri Hauka

Nokkrir góðir punktar

# Æfingatímarnir okkar (staðfestir)
mánudagar kl 16:00 til 17:00
miðvikudagar kl 15:00 til 16:00
sunnudagar kl 11:00 til 12:00 (Risinn)

# Klæða sig eftir veðri og klæða sig vel !
Það er farið að vera kalt í veðri og blæs stundum á Ásvöllum, þess vegna er betra að hafa með sér húfu, vettlinga og ýmislegt annað sem maður getur þá frekar tekið af sér ef manni verður heitt.

# Taka með sér vatnsbrúsa !
Þegar maður tekur vel á því á æfingum og er duglegur er oft gott að verðlauna líkamann með góðum vatnssopa. Þannig fáum við meiri orku. Við þjálfarar gefum vatnspásur á æfingum, en tíminn er samt ekki nógur til að hlaupa alla leið inn í hús.

Sjáumst hress og kát á æfingum !
kv. Kristján og Andri


Foreldrafundur og nýr æfingatími á mánudögum

Sælar stelpur og foreldrar !

Á mánudaginn (1.okt) verður foreldrafundur á Ásvöllum kl 18:30,
væri virkilega gaman að sjá sem flesta !

Æfingatíminn okkar á mánudögum er búinn að breytast. Við erum núna frá 16:00 til 17:00 :)

Vonumst til að sjá alla hressa á mánudaginn,
kv. Andri og Kristján


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband